Jæja ætli það sé ekki best að skella inn einu bloggi
hérna

en ég er bara búinn að sitja hérna heima á rassgatinu fyrir
framan tölvuna síðan á sunnudag

svo eru bara skólaslit á
morgun

en ég er búin að fá að vita hvað ég fékk í samræmdu
prófunum og ég er bara nokkuð ánægður með það

en já ég fór á
sjóinn í Grindavík fyrir viku og það var bara stuð sko, á meðan
bekkurinn minn fór til Danmerkur þá var ég út á sjó að græða
pening

við veiddum einhver 60 tonn og það er kannski 100 þúsund
kjéll

en svo keypti ég svo flott hálsmen hana henni pálínu
minni

dýrt keypti það í Leonard í kringlunni

eða ég held að það
heiti það

en allavega þá er maður kominn með vinnu á sjó í
Keflavík eða Grindavík í sumar hjá honum hódda bróðir pabba

það
er ekki illa borgað þar sko

en ég átti samt að fara á einhvern
frystitogara há Samherja en svo kveiknaði í Akureyrinni þannig að
ég komst ekki þangað

og ohh svo komst ég ekki á Sauðárkrók um
helgina til að kveðja Pálínu mina áður en að hún fer til
Spánar:'(ohh mig langar svo til að kveðja hana

æji ég á eftir að
sakna þessarar elsku svo mikið;*<3en djöfullinn ég hefði getað
verið að fara á tónleika með Bubba ef að bræður mínir hefður ekki
misskilið hvorn annan! ohh ég er djöfulli fúll marr!!!ohh! svo fer
ég ekki á hróaskeldu með Palla eins og ég ætlaði mér:/hehe er að
fara vinna frekar

en allavega þá ætla ég að hætta að skrifa þessa
vitleysu og kveð bara að sinni